Friday, May 16, 2008

Sumar 2008





Eru ekki allir klárir fyrir sumarið ? Það erum við allavegana !!!

Sunday, February 10, 2008

Fyrirmyndarmorgun


Allir tilbúnir og bíða þess að lagt verði af stað í skóla, leikskóla og til dagmömmu ! Með orðum Hjördísar Ylfu eru þetta talið frá vinstri: Bói (=Tómas Orri), ég (=Hjördís Ylfa) og krakkar (=Guðrún Herdís).

Mál til komið að hleypa nýju blóði í skrifin hér - ha ha


Finnst við hæfi að smella hér inn einni mynd af lillunni okkar sem er nýorðin tveggja ára. Aðalorðið hjá henni þessa dagana er ég, ég, ég og svo segir hún reyndar orðið mjög margt annað og farin að myndast við að segja heilar setningar.     Sagði t.d. í dag: "pabbi, ekki knúsa mömmu" !!! Af þessu sést að stúlkan er orðin vel talandi og með munnin fyrir neðan nefið :-) En semsagt, Hjördís Ylfa er afar dugleg og sjálfstæði dama sem vill helst allt gera sjálf, þar með talið að klæða sig og setja á sig bleyju sjálf, sem getur reyndar verið frekar snúið mál. Það er helst að hún þiggi hjálp frá stóru systur ef allt um þrýtur, enda stóra systir óþreytandi við að hjálpa henni og stjana við hana. 

Monday, November 26, 2007

Lífið á stóru heimili !!!


Það getur verið svolítið snúið þegar allir meiða sig í einu og þurfa að fá huggun hjá mömmu sinni :-)

Ballerína


Þá er ballettskólinn kominn í jólafrí en síðasta tímann fyrir fríið fengu mamman, Tómas og ömmurnar að fylgjast með. Mjög skemmtilegt.

Wednesday, November 14, 2007

Kaffihúsið


Mér var boðið á kaffihús í dag..............í herberginu hennar Hjördísar Ylfu. Þjónustudaman var Hjördís Ylfa sjálf!!! Hún byrjaði á því að draga mig inn í herbergið sitt og sagði svo "sitja". Ég settist á gólfið og þá gekk hún að litlu barnaeldhúsi sem er í herberginu hennar. Þar baukaði hún aðeins en kom svo til mín með plast-brauðsneið, fór svo aðra ferð í "eldhúsið" sitt og náði í bolla og undirskál sem hún lét mig fá og hellti svo í með könnu :-) Ég að sjálfsögðu tók þátt í þessu öllu og þegar ég hafði gert veitingunum skil sagði hún "att búið", tók allt dótið og setti það aftur í eldhúsið sitt.
Þetta er það allra besta kaffihús sem ég hef komist á !!!

Monday, November 05, 2007

Litla draumadrottningin okkar!


Hjördís Ylfa sofnaði vært á leiðinni heim úr matarboði einn daginn og ég bar hana sofandi inn í rúmið sitt. Tómas Orri fylgdist með þegar ég var að klæða hana sofandi úr útifötunum í rúminu sínu og svo hvíslaði hann að mér "mamma, ég held að hana sé að dreyma að hún sé drottning því það finnst henni svo fallegt". Maður getur stundum bara alveg bráðnað.

Wednesday, October 31, 2007

Höddí er það ef réttur aðili spyr :-)

sífellt bætist við orðaforðann hjá Hjördísi Ylfu og hún er meira að segja farin að gera tilraunir til að raula lög. Hún nefnir orðið systkini sín með nafni, stelpurnar hjá dagmömmunni nefnir hún líka með nafni og svo mætti áfram telja. En ef hún er spurð að því hvað hún heiti sjálf þá hefur hún hingað til alltaf sagt "krakkar". Hún heitir semsagt krakkar að eigin sögn !!! Fyrir nokkrum dögum vorum við svo staddar hjá Fjólu frænku. Þar á bæ er til lítil leikbrúða sem reyndar lítur út eins og ræningi en Hjördís Ylfa er mjög hrifin af þessum skeggjaða karli. Ég fór að leika fyrir brúðuna og tala við stúlkuna og á endanum spurði leikbrúðan hana hvað hún héti og hvað haldiði að mín hafi sagt.... "Höddí". Skömmu seinna spurði ég hana svo (sem mamma hennar) hvað hún héti og þá hét hún aftur "krakkar". Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt lið !!!

Sunday, October 14, 2007

Góða nótt og Guð geymi þig !


Þegar ég býð börnunum mínum góða nótt enda ég oft á að segja "sofðu nú vel og Guð geymi þig". Þetta hafa þau heyrt nánast á hverju kvöldi frá því að þau fæddust. Tómas Orri, sem þessa dagana spáir mikið í hlutunum rís upp eitt kvöldið þegar ég hafði boðið honum góða nótt og segir "hvernig er það mamma, tekur Guð okkur þá til sín á nóttunnu til að passa okkur ?" :-) Já, það er oft erfitt að skilja allt þetta tal hjá fullorðna fólkinu !!!