Tuesday, October 31, 2006

Lítill aðdáandi


Guðrún Herdís er búin að vera í vetrarfríi í skólanum sínum. Erum búnar að hafa ýmislegt fyrir stafni en að mestu búnar að hafa það gott hér heima mæðgurnar og slappa af. Í dag var Guðrún Herdís að föndra af miklum móð og Hjördís Ylfa sniglaðist allt í kringum hana, mjög áhugasöm lítil föndurkona :-)

Saturday, October 28, 2006

Könglaleiðangur í Heiðmörk



Ég , Guðrún Herdís og Tómas Orri skruppum upp í Heiðmörk í dag í leit að könglum. Fundum og söfnuðum fullt af þeim í yndislegu veðri. Við gengum reyndar svo langt að okkur tókst eiginlega að "villast" þarna í þessum íslenska skógi. Allt fór þó vel og við fundum aftur rétta stíginn en vorum þá orðin ansi sein fyrir því við vorum á leið í þriggja ára afmæli til Þórðar Inga vinar okkar. En með því að breyta gönguferðinni í skokkferð hófst þetta nú allt að lokum og við komumst heim með könglana og vorum mætt á réttum tíma í afmælið.

Afmælið var í Grafarvoginum og ætluðum við að sjálfsögðu að keyra sem leið lá í átt að Vífilstöðum en sú leið er nánast ófær nema að nóttu til um þessar mundir vegna umferðarþunga. Það bráðliggur á að ljúka við tvöföldun vegarins á þessari leið. Okkur tókst þó að beygja inn hjá IKEA og snúa við og fara "Fjarðarkaupsleiðina" í staðinn.

Orð dagsins á annars Tómast Orri, hann leit á mig hér í kvöld og sagði "mamma, þú ert fallegasta konan sem til er í heiminum", þar höfum við það fyrir þau ykkar sem ekki vissuð þetta fyrir :-)

Friday, October 27, 2006

Lítil pissudúkka


Hjördísi Ylfu finnst voða notalegt þessa dagana að fá að hnuðlast um án bleyjunnar, þegar hún er sett þannig á gólfið þá tístir hún og skríkir af ánægju. Í gær fékk hún að ferðast um á gólfinu í tölvuherberginu svona frjáls. Hún var fljót að rjúka að bókahillunni og standa þar upp og þar gerði hún sér lítið fyrir og sprændi á bækurnar sem fyrir voru. Svo vildi þó til að allar bækurnar sem urðu fyrir barðinu á þessari uppákomu voru í eign móður hennar !!! Þetta fannst pabba hennar ákaflega gott hjá þeirri stuttu :-)

Tuesday, October 24, 2006

Þjóðlegt afmæli




Um helgina fórum við stórfjölskyldan í þjóðlegt og skemmtilegt barnaafmæli, þar sem hún Hildur vinkona okkar varð 7 ára gömul. Þema afmælisins var gamli tíminn og voru þónokkrar mættar í þjóðbúningum og aðrir veislugestir í sínu fínasta pússi, eins og sjá má á myndunum sem fylgja þessari færslu.

Wednesday, October 18, 2006

Kaplapriki

Tómas Orri er nýlega byrjaður í íþróttaskóla hjá FH á laugardögum. Þetta er mjög skemmtilega upp settur íþróttaskóli sem byggist á þrautahringjum sem börnin fara í gegnum undir leiðsögn þjálfara (og foreldrar taka fullan þátt í aðstoðinni). Enda finnst Tómasi Orra og reyndar okkur báðum mjög gaman þarna. Ekki skemmir svo fyrir að þetta er þátttakendum að kostnaðarlausu - húrra fyrir Hafnarfirði sem greiðir niður gjöld fyrir íþróttaiðkun barna. Í dag keyrðum við svo framhjá íþróttahúsinu þar sem kennslan fer fram og þá segir Tómas Orri "af hverju er íþróttaskólinn minn í Kaplapriki", já betra að tala skýrt við þessi kríli !!!

Kuldagallar

Það kom að því, kuldagallarnir voru dregnir fram í morgunsárið og veturinn þar með kominn á mínum bæ. Svosem ekki hægt að kvarta eftir langt og gott haust. Mestu vonbrigðin hjá börnunum er að það sé ekki kominn snjór þó að vetur konungur sé genginn í garð. Guðrún Herdís rýkur út í glugga á hverjum morgni og heyrist svo tauta “ohhh hvenær kemur snjórinn”. Veit ekki alveg hvort ég deili þessum spenningi með þeim en þeim verður örugglega að ósk sinni fyrr en síðar.

Tuesday, October 17, 2006

Hjördís Ylfa og Grétar Björn


Þau eiga það sameiginlegt þessi frændsystkini að vera alveg hryllilega sæt :-)

Friday, October 13, 2006

Bráðum koma blessuð jólin !!!

Þar sem ég bý í næsta nágrenni við hið nýja IKEA hef ég ekki komist upp með annað en að fylgjast með framkvæmdum þarna síðustu mánuði. Fyrir nokkru komu þeir fyrir stóru skilti á versluninni sem á stóð "Opnum 12.október". Að kvöldi 11.október átti ég leið þarna framhjá og sá að þeir voru búnir að fjarlægja skiltið og var að spá í hvaða skilti þeir myndu þá koma fyrir í staðinn. Viti menn, daginn eftir var komið nýtt sem á stóð "Jólin þín byrja í IKEA" !!! Átti hreinlega ekki til orð, og mér sem finnst sumarið varla liðið !!!

Thursday, October 12, 2006

Skólaskemmtun

Ég og Hjördís Ylfa mættum á skólaskemmtun hjá 3.bekk í morgun, þar sem bæði leikur og tónlist voru á dagskránni. Guðrún Herdís lék með bekknum sínum í voða skemmtilegu leikriti sem fjallaði um stóra fjölskyldu sem fór í sólarlandaferð :-) Að auki spilaði hún á flautu með tveimur vinkonum sínum eins og sjá má á myndinni (ef vel er gáð) !!! Semsagt skemmtilegur morgunn hjá okkur mæðgunum þremur.

Wednesday, October 11, 2006

"Kóngulóarmamma"


Á heimilinu býr um þessar mundir alveg ótrúlega glaður "spiderman". Hann breytir þó stöku sinnum um hlutverk og er þá Tómas Orri en aðallega er hann kóngulóarmaðurinn ógurlegi :-) Í dag er svo búningadagur á leikskólanum og að sjálfsögðu mætti kappinn í nýja búningnum sínum. Þegar við mættum á leikskólann voru komnir 5 aðrir kóngulóarmenn sem voru allir alveg rosalega glaðir að hittast, 1 kúreki og 1 Hrói Höttur. Síðan voru á leiskólann líka mættar fullt af svakalega fínum prinsessum í þvílíku kjólunum með uppgreitt hárið, náttúrulega bara sætt :-)
En á leiskólanum voru þó engar stelpur í spidermanbúningum og engir strákar sem prinsessur, hmmmm !!! Maður leiðir óneitanlega hugann að því hvort við séum að ala börnin okkar upp í fyrirfram stöðluðum kynjaímyndum ? Auðvitað fæðast þessi kríli ekki með fyrirfram ákveðnar ímyndir um hlutverk kynjanna og sumir vilja meina að við ákveðum þetta allt fyrir þau. En eftir að vera orðin þriggja barna móðir barna af báðum kynjum þá er ég sannfærð um að þetta er allavegana að góðum hluta eitthvað sem er innbyggt í þau (hvort sem við svo ýtum undir þessi kynjahlutverk, það gæti svosem verið og er eitthvað sem maður ætti að hafa í huga). En það er alveg ljóst að kappinn minn hefði ekki orðið neitt yfir sig sæll ef ég hefði gefið honum prinsessukjól eða Rauðhettu-búning. En þegar hann sá "spiderman-búninginn" hreinlega ljómaði drengurinn af ánægju, og er það ekki málið :-)

Tuesday, October 03, 2006

Tennur trufla nætursvefn


Hjördís Ylfa tekur tanntöku almennt með trompi. Ekki nóg með að fyrstu tennurnar komu þegar hún vara bara 4 mánaða heldur eru núna þessa dagana að riðjast í hana 4 stk tennur, næstum því allar í einu. Enda var hún búin að vera svolítið pirruð og skyldi engan undra það.
Það var gaman að fylgjast með þeim systrum í dag. Þegar Guðrún Herdís kom heim úr skólanum var Hjördís Ylfa að leika sér í eldhúsinu, hún heyrir að stóra systir er að koma og stendur þá við hliðið í eldhúsdyrunum og dillar sér. Svo þegar stóra systir birtist í stiganum þá bókstaflega ískraði í þeirri stuttu og hún skellihló :-) Frekar sætt og ekki fannst nú Guðrúnu Herdísi þetta leiðinlegt.