Monday, November 26, 2007

Lífið á stóru heimili !!!


Það getur verið svolítið snúið þegar allir meiða sig í einu og þurfa að fá huggun hjá mömmu sinni :-)

Ballerína


Þá er ballettskólinn kominn í jólafrí en síðasta tímann fyrir fríið fengu mamman, Tómas og ömmurnar að fylgjast með. Mjög skemmtilegt.

Wednesday, November 14, 2007

Kaffihúsið


Mér var boðið á kaffihús í dag..............í herberginu hennar Hjördísar Ylfu. Þjónustudaman var Hjördís Ylfa sjálf!!! Hún byrjaði á því að draga mig inn í herbergið sitt og sagði svo "sitja". Ég settist á gólfið og þá gekk hún að litlu barnaeldhúsi sem er í herberginu hennar. Þar baukaði hún aðeins en kom svo til mín með plast-brauðsneið, fór svo aðra ferð í "eldhúsið" sitt og náði í bolla og undirskál sem hún lét mig fá og hellti svo í með könnu :-) Ég að sjálfsögðu tók þátt í þessu öllu og þegar ég hafði gert veitingunum skil sagði hún "att búið", tók allt dótið og setti það aftur í eldhúsið sitt.
Þetta er það allra besta kaffihús sem ég hef komist á !!!

Monday, November 05, 2007

Litla draumadrottningin okkar!


Hjördís Ylfa sofnaði vært á leiðinni heim úr matarboði einn daginn og ég bar hana sofandi inn í rúmið sitt. Tómas Orri fylgdist með þegar ég var að klæða hana sofandi úr útifötunum í rúminu sínu og svo hvíslaði hann að mér "mamma, ég held að hana sé að dreyma að hún sé drottning því það finnst henni svo fallegt". Maður getur stundum bara alveg bráðnað.

Wednesday, October 31, 2007

Höddí er það ef réttur aðili spyr :-)

sífellt bætist við orðaforðann hjá Hjördísi Ylfu og hún er meira að segja farin að gera tilraunir til að raula lög. Hún nefnir orðið systkini sín með nafni, stelpurnar hjá dagmömmunni nefnir hún líka með nafni og svo mætti áfram telja. En ef hún er spurð að því hvað hún heiti sjálf þá hefur hún hingað til alltaf sagt "krakkar". Hún heitir semsagt krakkar að eigin sögn !!! Fyrir nokkrum dögum vorum við svo staddar hjá Fjólu frænku. Þar á bæ er til lítil leikbrúða sem reyndar lítur út eins og ræningi en Hjördís Ylfa er mjög hrifin af þessum skeggjaða karli. Ég fór að leika fyrir brúðuna og tala við stúlkuna og á endanum spurði leikbrúðan hana hvað hún héti og hvað haldiði að mín hafi sagt.... "Höddí". Skömmu seinna spurði ég hana svo (sem mamma hennar) hvað hún héti og þá hét hún aftur "krakkar". Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt lið !!!

Sunday, October 14, 2007

Góða nótt og Guð geymi þig !


Þegar ég býð börnunum mínum góða nótt enda ég oft á að segja "sofðu nú vel og Guð geymi þig". Þetta hafa þau heyrt nánast á hverju kvöldi frá því að þau fæddust. Tómas Orri, sem þessa dagana spáir mikið í hlutunum rís upp eitt kvöldið þegar ég hafði boðið honum góða nótt og segir "hvernig er það mamma, tekur Guð okkur þá til sín á nóttunnu til að passa okkur ?" :-) Já, það er oft erfitt að skilja allt þetta tal hjá fullorðna fólkinu !!!

Sunday, October 07, 2007

Tómas Orri og flautan




Við kvöldverðarborðið hér á heimilinu fyrir stuttu var eitthvað sem Tómas Orri þurfti að tjá sig um Guðrúnu Herdísi og þverflautunámið hennar. Honum vefst tunga um tönn og hann er lengi hugsi en svo byrjar hann að segja Guðrún Herdís og "freðflautan" reynir svo aftur en það sama kemur út "freðflautan". Þá fer hann að hálfhlægja, lítur á móður sína og spyr "hvað var ég eiginlega að segja mamma". Hann reynir betur og þá kemur Guðrún Herdís og "sverðflautan", það fannst honum stórfyndið sjálfum :-) Já frekar skondið því hann er alveg altalandi en ef maður spáir í því þá er "þverflauta" ekki með auðveldari orðum í framburði.

Sunday, September 09, 2007

Gott sumar með Katharinu :-)


Nú er hún Katharina okkar farin aftur til Þýskalands. Búið að vera dásamlegt að hafa hana hjá okkur í sumar. Alger perla þessi stúlka og alveg búin að redda sumrinu hjá okkur. Krakkarnir alsæl með hana þannig að mikið var um grát og gnístran tanna þegar hún þurfti að fara til baka. En blikur eru á lofti um að hún komi aftur til okkar næsta sumar og það þætti okkur nú ekki leiðinlegt.

Thursday, August 30, 2007

Ungur nemur, gamall temur


Svei mér þá ef hann er ekki enn að reyna að koma einhverju viti inn í hausinn á dóttur sinni !!!

Gu og Goma !!!


Í dag nefndi Hjördís Ylfa bróður sinn með nafni og hann heitir samkvæmt henni Goma og Guðrúnu Herdísi kallar hún Gu. Oftast segir hún þó bara gakka (krakkar) við þau, hvort sem hún er að tala við annað þeirra eða bæði :-)

Thursday, August 16, 2007

Nammi, namm !!!


Þeir eru ófáir ísarnir sem búið er að sporðrenna þetta sumarið !!!

Kannski fer bloggið eitthvað að vakna af sumardvala. Hver veit !!!




Smá greinargerð yfir orðin sem Hjördís Ylfa er farin að segja núna í ágúst 2007.


mamma, babba, húfa, sokka, gó (skór), bæ, goggulo (kónguló), Gagaena (Katharina), oj, ma (meira), pa (súpa), gur (fiskur), abú (allt búið), ám (já), nei, detta, dakk (takk) = 17 orð !!!


Friday, July 20, 2007

Fréttir dagsins !!!

Ja, ég legg nú ekki meira á ykkur en það að litli, stóri strákurinn minn hann Tómas Orri er með lausa tönn. Önnur framtönnin í neðri gómi er bara alveg laflaus og drengurinn enn fjögurra ára - ég var alveg steinhissa þegar hann kom hinn hróðugasti og benti mér á þetta.

Tuesday, July 17, 2007

Brekkuskógur 2007


Frábært sumarfrí í Brekkuskógi með sól og hita upp á hvern einasta dag !!!

Tuesday, July 03, 2007

Rollingarnir þrír



Ein náttfatamynd - með kveðju úr Stuðlaberginu.
Posted by Picasa

Sunday, July 01, 2007

Brostnar vonir á Helgafelli


Eins og eflaust margir vita liggur Guðrún Ósvífusdóttir, ein fyrsta landnámskona Íslands grafin við Helgafell, sem staðsett er í næsta nágrenni Stykkishólms. Trúa menn því að ef maður gengur frá leiði Guðrúnar upp í byrgi sem staðsett er á Helgafelli án þess að líta til baka eða til hliðar og án þess að tala, horfi svo þaðan í austur og óski sér þá rætist hjá manni þrjár óskir. Þetta þótti börnunum að sjálfsögðu mjög merkilegt og tóku þetta mjög alvarlega og örkuðum við öll á fjallið án þess að segja orð eða líta til baka. Þegar í byrgið var komið litum við í austur, Tómas Orri spennti greipar mjög hátíðlegur á svip og stóð þannig góða stund. Þegar því var lokið leið varla ein mínúta áður en drengurinn brast í grát og sagði við mig "en mamma, óskin mín hefur ekki ræst" !!!!
Posted by Picasa

Sólarbærinn 2007





Ja, nú er liðið heldur langt frá síðasta bloggi, það var varla að ég myndi lykilorðið inn á mína eigin síðu !!! Ekki nógu gott.
Ég ásamt eldri börnunum tveimur og Katharinu, frábæru au-pair stelpunni okkar eyddum helginni í Stykkishólmi eða eins og Tómas Orri segir "Sólarbænum". Hann heyrði eitthvað skakt StykkisHÓLM og tekur það fyrir StykkisSÓL, og af hverju þá ekki að kalla þetta bara sólarbæinn enda heiðraði sólin okkur með nærveru sinni alla helgina, auk þess sem helgin var stórvel heppnuð. Fórum í eyjasiglingu, gengum á Helgafell, fórum í Sauraskóga og síðast en ekki síst gistum hjá Menju og Róbert + börnum og eyddum góðum tíma með þeim.
Posted by Picasa

Saturday, May 19, 2007

Eins dags gamalt folald í sveitinni

Það jafnast ekkert á við það að komast aðeins út fyrir borgarmörkin og teyga að sér sveitaloftinu - dásamlegt.

Sú stutta í sveitinni


Hjördís Ylfa og Hallgerður í góðum gír.

Tómas Orri í sveitinni


Allir fengu að taka þátt í sveitastörfunum

Stóra-Ármót


Áttum frábæran dag í sveitinni.

Sunday, April 22, 2007

Litla ofurhetjan


Það var að hennar eigin ósk sem daman litla var klædd í þennan útbúnað. Hún sá búninginn í herberginu hjá bróður sínum og linnti ekki látum fyrr en hún fékk hjálp við að komast í hann, frekar fyndið !!!
Annar er þessi litla ofurhetja búin að vera eitthvað lasin yfir helgina en vonandi fer hún nú að hressast.

Tómas Orri og dýrin



Eins og þeir vita sem þekkja Tómas Orra vel þá er hann afskaplega mikill dýramaður og hefur verið frá fyrstu tíð. Uppáhaldsleikföngin eru dýr, honum finnst gaman að skoða bækur með dýramyndum og láta lesa fyrir sig dýrabækur. Því fannst mér það mjög í samræmi við aðaláhugamálið þegar hann var í vandræðum með að klæða sig í sokka hér einn morguninn og kallar til mín "mamma, ég kemst ekki í sokkinn, viltu rétta mér smá hjálparloppu" !!!

Tuesday, April 17, 2007

Engir mannasiðir



Tómas Orri er afskaplega montinn af litlu systur sinni og það er gaman að fylgjast með honum þegar hún kemur með að ná í hann á leikskólann. Hann leiðir hana um allt og sýnir hana fóstrunum og hinum krökkunum og segir hinn stoltasti "þetta er litla barnið mitt". Um daginn lét hann það þó fylgja með að hún ætti alveg eftir að læra alla mannasiði !!! Kannski ekki skrítið að honum finnist það ef tekið er mið af myndunum sem hér fylgja með :-)

Tuesday, April 10, 2007

Páskar 2007



Á þessum bæ er ekkert verið að tvínóna við hlutina !

Tuesday, March 27, 2007

Ballerína og bókaormur


......... og hvað gera svo bókaormar að ballettsýningu lokinni (hahahaha) !!!

Páskaliljan Guðrún Herdís


Ef þetta eru ekki fallegustu páskaliljurnar í ár þá veit ég nú bara ekki hvað :-)

Saturday, March 24, 2007

Flottar frænkur

Guðrún Herdís og Valgerður

Guðrún Herdís í kórnum


Guðrún Herdís er í kór Setbergsskóla sem söng á tónleikum í Víðistaðakirkju í lok barnakóramóts Hafnarfjarðar. Þetta var rosalega fínt hjá öllum þessum krökkum . Guðrún Herdís söng einsöng í einu erindi með sínum kór. Stóð sig með prýði stúlkan og hafði greinilega gaman af.

Wednesday, March 21, 2007

Betra að vera við öllu búin !!!


Hjördís Ylfa ákvað að "græja sig upp" með heyrnartól þegar von var á Grétari Birnir frænda í pössun til okkar ef ske kynni að drengurinn yrði með einhvern hávaða og uppsteit :-) Þessi viðbúnaður reyndist þó með öllu óþarfur því strákurinn var hinn spakasti og samdi þeim frændsystkinum ákaflega vel.

Tuesday, March 20, 2007

Snjór, snjór, snjór


Spurning hvort þetta sé síðasti snjór vetrarins ? Erfitt að segja til um það.

Saturday, March 10, 2007

Tómas Orri og tilveran


Tómas Orri var að velta því fyrir sér fyrir stuttu hvort allt fullorðið fólk eignaðist börn? Upp úr þessu spannst umræða hjá okkur um að svo væri ekki og hinar ýmsu ástæður fyrir því. Ég spurði hann svo hvort hann ætlaði að eignast börn þegar hann yrði fullorðinn. Þetta velktist nú heilmikið fyrir honum, hann nefndi að þá þyrfti hann nú að finna konu og svona. En hann átti samt von á að þetta yrðu svona um 7 – 20 börn !!! Ég spurði hann þá hvort hann héldi ekki að það yrði aðeins of mikil vinna að eiga svona mörg börn? Aaa, nei því honum fannst líklegt að þetta yrðu meira eða minna allt tvíburar, svo þá væri þetta ekki svo mikið mál.


Ég veit ekki alveg hvort tvíburaforeldrar almennt séu sammála Tómasi Orra í því að auðveldara sé að koma slíku liðið á legg !!!

Wednesday, March 07, 2007

Kassaæði


Þetta er nýjasta æðið hjá litlu heimasætunni þessa dagana. Það er að fara ofan í alla kassa sem á vegi hennar verða. Sama hversu litlir, stórir, breiðir, mjóir, háir, lágir, fullir eða tómir, hún gefst ekki upp við að troða sér ofan í þá. Svo verður hún voðalega hreykin með sig þegar það tekst, eins og sjá má á svipnum.

Tuesday, February 27, 2007

ótrúlega rík mamma :-)

Gaman að honum Tómasi Orra þessa dagana. Hann er með svo svakalega fjörugt ímyndunarafl.
Í dag vorum við að púsla saman Evrópulandakortspúsl og vorum aðeins að „stúdera“ öll þessi lönd í leiðinni. Ég sagði honum frá því að einu sinni hefði ég unnið í Noregi og í vinnunni hefði ég stundum týnt alveg fullt af jarðaberjum. Já, þetta fannst honum merkilegt en sagði mér svo í framhaldinu að hann hefði líka komið til Noregs, hann fór þangað í leynibrunabátnum sínum (og sýndi mér á landakortinu hvaða leið hann fór). Svo þegar hann var kominn til Noregs gerði hann sig ósýnilegan og fór einmitt og náði sér í dálítið af jarðaberjum þar sem ég hafði verið að vinna, mmmm og fannst þau voða góð.
Já, það er gaman að vera 4 ára og finnast ekkert vera ómögulegt :-)

Monday, February 26, 2007

Hjördís Ylfa

Allir kátir hér á bæ nema hvað hún Hjördís Ylfa er eitthvað lasin, útsteypt í einhverjum útbrotum og með tæplega 39 stiga hita. Vonandi að hún verði snögg að hrista það af sér stúlkan.

Sunday, February 25, 2007

Aðaltöffarinn í bænum !!!

Vorum aðeins að prófa ýmsar útgáfur af vatnsgreiðslu og skemmtum okkur mikið á meðan :-)


Loksins


já, það er sko greinilegt að hin heimavinnandi húsmóðir er orðin útivinnandi !!! Komin tími til að breyta um heiti á síðunni og kalla hana t.d. húsmóðir í hjáverkum !!! Fer í það mál fljótlega.


Ein góð úr Fossvoginum:

Í dag skruppum við í heimsókn til Ernu og co í Fossvoginn. Guðrún Herdís og Valgerður voru að leika saman inni í herbergi og eitthvað var Tómas Orri að sniglast þarna í kringum þær frænkurnar. Eitthvað þurfti svo að skakka leikinn og Arnar kallar á Guðrúnu Herdísi til sín og segir að þær eigi ekki að vera að skilja Tómas Orra út undan. Allt í góðu með það og Guðrún Herdís fer aftur inn í herbergi og þegar hún er komin úr augsýn heyrist í henni "púff, þetta tók nú fljótt af, hann er vanur að halda langar ræður". Já, hún er efnileg stúlkan :-)

Thursday, January 11, 2007

Fallegur draumur

Í morgun fór ég að venju inn í herbergi til Tómasar Orra til að klæða hann á leikskólann. Hann rumskaði þegar ég kom inn og stundi upp "nei mamma, nei mamma ekki slökkva á barnaefninu í augunum á mér" :-) Já þetta hefur án efa verið fallegur draumur sem hann var að dreyma þarna litli karlinn.