Þegar ég fór í leikskólann með Tómas Orra í morgunn sagði ég við hann þegar við komum út "það er bara alveg grenjandi rigning Tómas Orri". Hann leit á mig alveg hneikslaður og sagði "nei mamma, þetta er bara glöð rigning sem kemur úr himninum". Semsagt ekkert grátlegt við rigninguna sem herjar á okkur þessa dagana :-)
Wednesday, December 20, 2006
Monday, December 11, 2006
Hvar er lakkrísinn ???
Jamm, búið að baka piparkökur á þessum bæ þar sem allir tóku þátt sem vettlingi gátu valdið og skemmtu sér mjög vel. Í dag bökuðum við Guðrún Herdís svo lakkrísbitakökur sem ungfrúnni leist svo vel á í kökubókinni. Allt gekk vel þangað til að við áttum bara eftir að setja lakkrískurlið út í deigið. Þá gátum við ekki fundið lakkrísinn. Skildum ekkert í því hvar við hefðum gengið frá honum og leituðum og leituðum en allt kom fyrir ekki. Á endanum var pabbinn spurður hvort hann vissi nokkuð hvar gengið hefði verið frá lakkrísnum ??? Hmmmm, það varð fátt um svör og það kom dálítið skrítinn svipur á manninn. Andlitið á Guðrúnu Herdísi datt nánast af henni þegar í ljós kom að pabbi hefði borðað allan lakkrísinn. Þetta var nánast eins slæmt ástand og þegar pabbi Snuðru og Tuðru borðaði allt deigið áður en búið var að baka kökurnar (Guðrún Herdís var nú samt á því að pabbi Snuðru og Tuðru hefði brotið verr af sér en pabbi hennar)!!!! Allt endaði þetta nú samt vel því pabbinn rauk út í búð og keypti vænar byrgðar af lakkrískurli svo við gætum nú klárað kökurnar og í sárabætur keypti hann ís sem allir fengu í eftirmat. Allir fóru því sáttir og sælir að sofa, vitandi líka af honum Stekkjarstaur á leiðinni til byggða í nótt :-)
Sunday, December 10, 2006
Giljagaur og Leiðindaskjóða
Jæja, þá er jólaundirbúningurinn í algleimingi. Ég fór í dag með Guðrúnu Herdísi og Tómasi Orra í Árbæjarsafnið til að kynnast betur gömlum íslenskum jólahefðum. Þar áttum við alveg stórgóðan dag þrátt fyrir þrumur og eldingar, haglél og sjókomu (enda kannski frekar að það hafi aukið á jólastemmninguna). Við skoðuðum öll húsin og þá dagskrá sem þar var boðið upp á. Hlustuðum á Iðunni Steinsdóttur lesa upp úr bókum sínum, dönsuðum úti í kringum jólatré með gömlum, íslenskum jólasveinum, Giljagaur (sem sjá má á myndinni með Tómasi Orra og Guðrúnu Herdísi) og Leiðindaskjóðu (sem var bara hreint ekkert leiðinleg þegar við fórum að tala við hana). Börnin fengu að fara hring með hestvagni og svo mætti áfram telja. Semsagt mjög gaman hjá okkur og ég er ekki frá því að þetta verði gert að árlegri hefð hjá okkur. Á meðan var Hjördís Ylfa heima hjá pabba því hún er með einhverja leiðindahálsbólgu litla skinnið.
Friday, December 08, 2006
Fyrsta skrefið
Hjördís Ylfa er búin að vera dugleg við að sýna okkur hvað hún er orðin stór síðustu vikurnar. Það voru nú eiginlega eldri systkinin sem kenndu dömunni þetta, því alltaf ef hún óvart lyfti hendinni þá jusu þau yfir hana hrósum um hvað hún væri stór. Á endanum fór sú stutta auðvitað að fatta þetta og fór að lyfta hendinni upp í tíma og ótíma hin hróðugasta og leit svo á systkinin að bíða eftir viðbrögðum.
Annars eru stóru fréttirnar þær að Hjördís Ylfa tók sitt fyrsta skref í gær. Já, hún ákvað að vera ekkert að slóra við þetta og var meira að segja svo tillitssöm að leyfa bæði mömmu og pabba að vera viðstöddum.
Thursday, December 07, 2006
Húsmæðraorlof, ætti að vera skylda !!!
Skellti mér í húsmæðraorlof til Amsterdam yfir helgina. Fór ein og barnlaus og átti ótrúlega góðan tíma hjá fólkinu mínu þar í borg. Enn og aftur takk fyrir mig, maður fyllir heldur betur á orkutankinn með því að breyta svona til. Svo var náttúrulega æðislegt að koma heim aftur og hitta allt liðið. Hjördís Ylfa brosti sætt til mömmu sinnar þegar þau sóttu mig á flugvöllinn en hafði engan áhuga á að koma til mín, fannst greinilega bara fínt að vera hjá pabba. Alger dúlla. En þetta breyttist nú fljótt eftir að við komum heim og þá vildi hún ekki fara frá mér aftur :-)
Subscribe to:
Posts (Atom)