Tuesday, November 28, 2006

Ballett


Í gær var síðasti balletttíminn hjá Guðrúnu Herdísi fyrir jól. Sá tími er þannig að foreldrar og systkini fá að koma og fylgjast með. Við mættum öll fjölskyldan og höfðum mjög gaman að. Tómas Orri fékk sleikjó svo hann ætti aðeins auðveldara með að sitja kyrr í sætinu sínu (af því að sykur er svo róandi :-) og í miðri sýningu hallaði hann sér að mér og sagði: "mamma þetta er bara mjög skemmtilegt". Guðrún Herdís stóð sig mjög vel og það var gaman að horfa á og sjá allar framfarirnar. Svo nú er komið jólafrí í ballettnum en ballerínan er staðráðin í að halda áfram eftir jól.

Friday, November 17, 2006

Tómas Orri og jólamjólkin

Tómas Orra rak í rogastans í matvörubúðinni í síðustu viku, það var komin jólamjólk á markaðinn !!! Jólamjólkin er semsagt þessi hefðbundna skreytt með myndum af jólasveinunum. Allavegana átti sá stutti ekki til orð yfir þessu og tók ekki annað í mál en að versla inn ríflega af þessum varningi. Ekki veitti af því, þar sem við kvöldverðarborðið gerði hann lítið annað en að biðja um meiri jólamjólk og okkur sýndist hann einn hafa drukkið um einn líter. Aðspurður staðhæfir hann að jólamjólkin sé allt öðruvísi og mun betri á bragðið en sú venjulega :-)

Thursday, November 16, 2006

16.nóvember !!!




Guðrún Herdís 8 ára í dag. Læt hér fylgja með eina gamla og eina nýja mynd af stúlkunni.

Wednesday, November 15, 2006

Fyrsta orðið


Jæja, þá er Hjördís Ylfa farin að tala !!! Hún á reyndar langa leið fyrir höndum í þeim málum en fyrsta orðið er komið á hreint hjá henni. Orðið er "datt", þetta er búið að vera í mótun hjá henni síðustu vikurnar en nú hendir hún snuddunni sinni í gólfið og segir svo greinilega "datt". Hryllilega sætt, allavegana þangað til hún fer að henda öllu lauslegu í gólfið og láta okkur sækja það :-)

Wednesday, November 08, 2006

Hnútarnir


Eins og flestir vita skall á landinu hálfgert óveður um síðustu helgi. Við vorum þó stungin af úr bænum áður en ljóst var hvað spáin var svakalega slæm, og allt náttúrulega óbundið á pallinum hjá okkur, grillið og garðhúsgögnin. Þegar ég var búin að hlusta á nokkra fréttatíma á laugardeginum þar sem varað var við veðrinu og fólk beðið að binda allt lauslegt brá ég á það ráð að hringja í afa Dubba og biðja hann að huga að dótinu okkar. Hann var ekki lengi að bregðast við því og tjóðraði niður allt lauslegt. Þegar ég og börnin mín komum heim fórum við að huga að þessu. Ljóst var að þetta var ákaflega vel bundið og þá segir Guðrún Herdís "mamma er ekki best að biðja afa Dubba bara um að leysa þetta aftur, því hver er sínum hnútum kunnugastur" !!!

Sunday, November 05, 2006

Til hamingju með daginn !!!


Afi Grétar 65 ára í dag.

Til hamingju með daginn og takk fyrir þessa líka fínu veislu.