Friday, September 29, 2006

Skólastúlkan :-)



Skál í botn !!!


Jamm - fyrsta lögun tilbúin. En nei ekki er það rauðvín sem um ræðir heldur eðalkrækiberjasaft ala Kristín. Já, einhverntíma verður allt fyrst og nú var það saftin. Heppnaðist bara ágætlega að ég held. Það verður ekki amalegt að nota hana út á grjónagrautinn á næstunni - einhver æskunostalgía tengd því :-)

Wednesday, September 27, 2006

Í berjamó og mótmælagöngu


Skruppum austur fyrir fjall í gær og skelltum okkur í berjamó með ömmu og afa. Sennilega síðasti berjamórinn þetta árið enda bara fáir dagar í að októbermánuður heilsi okkur. Afi leiddi okkur að þessari líka fínu berjabrekku þar sem voru nóg af bláberjum og líka mikið af krækiberjum þó þau væru mörg orðin nánast of þroskuð. Þannig að nú er engin miskun, húsmóðirin verður að fara að sulta og safta.
Brunuðum svo aftur í bæinn um kvöldmatarleitið til að komast niður í bæ að mótmæla virkjunarframkvæmdum á hálendinu. Við fórum þangað allar mæðgurnar þrjár, þannig að uppeldi dætranna var vel sinnt í gærkvöldi :-)

Tuesday, September 26, 2006

Góðir gestir


Fengum góða gesti um helgina þar sem eru Menja, Róbert og börn úr Stykkishólminum. Þau komu hér á föstudag og gistu fram á laugardag og með þeim í för var hundurinn þeirra hún Flóra sem vakti ekki litla lukku hjá börnunum á mínu heimili. Hundurinn var bókstaflega eltur um allt, upp og niður og út og suður. Hann lét sér það bara ótrúlega vel líka enda sérlega vænn hundur þar á ferð. Hjördís Ylfa var sú eina sem ekki var neitt sérlega hrifin og þegar Flóra tók að gelt á kött sem átti leið fram hjá húsinu leist henni ekkert á blikuna og fór að hágráta.

"Tætubuska"


Ja, nú má fólk fara að passa sig. Framfarirnar hjá Hjördísi Ylfu eru hraðar þessa dagana. Hún kemst orðið um á ótrúlegum hraða og er í því að kanna umhverfið í kringum sig. Tekur á öllu sem hún kemst í og kannar það með litlu puttunum sínum og smakkar á því líka, eins og vera ber þegar maður er 8 mánaða. Skemmtilegast er svo að komast í herbergin hjá stóru systkinunum og skoða sig um þar, alger ævintýraheimur :-)
Annars var Hjördís Ylfa að þyngjast aðeins minna en venjulega í 8 mánaða skoðununni en það orsakast nú líklega af því að nú er hún mikið að skipta úr brjóstamjólkinni yfir í aðra fæðu auk þess sem hún hreyfir sig orðið svo mikið allan daginn.

Tuesday, September 19, 2006

Hjördís Ylfa stendur upp

Já, það er nú bara það. Hún Hjördís Ylfa gerði sér lítið fyrir og stóð upp í fyrsta sinn í síðustu viku, rétt tæpra 8 mánaða. Hlutirnir gerast hratt og í dag stendur hún upp bókstaflega allsstaðar þar sem það er á annaðborð möguleiki, bara sætt :-) Væri samt alveg til í að hún færi sér ekkert of hratt í að byrja að ganga, hún er svo mikill kálfur ennþá þessi elska.

Thursday, September 14, 2006

14.september

14.september 2002-2006. Einkasonurinn 4 ára í dag. Finnst eins og það hafi gerst í gær að hann fæddist á Landspítalanum. Fór að sofa hin sprækasta að kvöldi 13 sept. og var drengurinn kominn í heiminn kl. 8:30 morguninn eftir. Hann kom stór og flottur, reyndar svo stór að eftir var tekið og starfsfólkið kom sérstaklega til að skoða hann þess vegna. Athyglin vegna þessa var reyndar þannig að móðurinni þótti á köflum nóg um. En síðan eru semsagt liðin 4 ár og hann orðinn töluvert stærri, en ennþá jafn sætur og yndislegur :-) Ótrúlegt hvað þessi tími líður hratt. Mér finnst maður með tímanum verða einhverveginn meðvitaðri um að njóta þessara litlu kríla því áður en maður veit af verða þau vaxin úr grasi. Búið er að halda upp á afmælið hans en við gátum þó ekki setið á okkur og skellt í eina súkkulaðiköku svona í tilefni dagsins.

Wednesday, September 06, 2006

betri samviska

Stefni á að setja hér inn nokkur orð um það sem á daga hinnar heimavinnandi húsmóður drífur. Plöguð af samviskubiti yfir að vera ekki fyrir löngu búin að útbúa heimasíðu fyrir hvern afkomanda á barnalandi eða álíka stað sé ég þetta sem ákveðna lausn fyrir samviskuna, þar sem ég get hér einnig sett inn helstu fréttir af gullmolunum og jafnvel stöku mynd !!! En eins og vera ber á stóru heimili verður þessari fyrstu færslu að ljúka þar sem örverpið er vaknað eftir væran blund og kallar á þjónustu :-)