Gaman að honum Tómasi Orra þessa dagana. Hann er með svo svakalega fjörugt ímyndunarafl.Í dag vorum við að púsla saman Evrópulandakortspúsl og vorum aðeins að „stúdera“ öll þessi lönd í leiðinni. Ég sagði honum frá því að einu sinni hefði ég unnið í Noregi og í vinnunni hefði ég stundum týnt alveg fullt af jarðaberjum. Já, þetta fannst honum merkilegt en sagði mér svo í framhaldinu að hann hefði líka komið til Noregs, hann fór þangað í leynibrunabátnum sínum (og sýndi mér á landakortinu hvaða leið hann fór). Svo þegar hann var kominn til Noregs gerði hann sig ósýnilegan og fór einmitt og náði sér í dálítið af jarðaberjum þar sem ég hafði verið að vinna, mmmm og fannst þau voða góð.
Já, það er gaman að vera 4 ára og finnast ekkert vera ómögulegt :-)


