Wednesday, October 31, 2007
Höddí er það ef réttur aðili spyr :-)
sífellt bætist við orðaforðann hjá Hjördísi Ylfu og hún er meira að segja farin að gera tilraunir til að raula lög. Hún nefnir orðið systkini sín með nafni, stelpurnar hjá dagmömmunni nefnir hún líka með nafni og svo mætti áfram telja. En ef hún er spurð að því hvað hún heiti sjálf þá hefur hún hingað til alltaf sagt "krakkar". Hún heitir semsagt krakkar að eigin sögn !!! Fyrir nokkrum dögum vorum við svo staddar hjá Fjólu frænku. Þar á bæ er til lítil leikbrúða sem reyndar lítur út eins og ræningi en Hjördís Ylfa er mjög hrifin af þessum skeggjaða karli. Ég fór að leika fyrir brúðuna og tala við stúlkuna og á endanum spurði leikbrúðan hana hvað hún héti og hvað haldiði að mín hafi sagt.... "Höddí". Skömmu seinna spurði ég hana svo (sem mamma hennar) hvað hún héti og þá hét hún aftur "krakkar". Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt lið !!!
Sunday, October 14, 2007
Góða nótt og Guð geymi þig !
Þegar ég býð börnunum mínum góða nótt enda ég oft á að segja "sofðu nú vel og Guð geymi þig". Þetta hafa þau heyrt nánast á hverju kvöldi frá því að þau fæddust. Tómas Orri, sem þessa dagana spáir mikið í hlutunum rís upp eitt kvöldið þegar ég hafði boðið honum góða nótt og segir "hvernig er það mamma, tekur Guð okkur þá til sín á nóttunnu til að passa okkur ?" :-) Já, það er oft erfitt að skilja allt þetta tal hjá fullorðna fólkinu !!!
Sunday, October 07, 2007
Tómas Orri og flautan
Við kvöldverðarborðið hér á heimilinu fyrir stuttu var eitthvað sem Tómas Orri þurfti að tjá sig um Guðrúnu Herdísi og þverflautunámið hennar. Honum vefst tunga um tönn og hann er lengi hugsi en svo byrjar hann að segja Guðrún Herdís og "freðflautan" reynir svo aftur en það sama kemur út "freðflautan". Þá fer hann að hálfhlægja, lítur á móður sína og spyr "hvað var ég eiginlega að segja mamma". Hann reynir betur og þá kemur Guðrún Herdís og "sverðflautan", það fannst honum stórfyndið sjálfum :-) Já frekar skondið því hann er alveg altalandi en ef maður spáir í því þá er "þverflauta" ekki með auðveldari orðum í framburði.
Subscribe to:
Posts (Atom)