Tuesday, October 03, 2006

Tennur trufla nætursvefn


Hjördís Ylfa tekur tanntöku almennt með trompi. Ekki nóg með að fyrstu tennurnar komu þegar hún vara bara 4 mánaða heldur eru núna þessa dagana að riðjast í hana 4 stk tennur, næstum því allar í einu. Enda var hún búin að vera svolítið pirruð og skyldi engan undra það.
Það var gaman að fylgjast með þeim systrum í dag. Þegar Guðrún Herdís kom heim úr skólanum var Hjördís Ylfa að leika sér í eldhúsinu, hún heyrir að stóra systir er að koma og stendur þá við hliðið í eldhúsdyrunum og dillar sér. Svo þegar stóra systir birtist í stiganum þá bókstaflega ískraði í þeirri stuttu og hún skellihló :-) Frekar sætt og ekki fannst nú Guðrúnu Herdísi þetta leiðinlegt.

1 comment:

Steinunn said...

Ohh það er sko ekki amalegt að eiga svona góða stóra systur:-) Skemmtileg síða hjá þér Kristín mín, gaman að fylgjast með gullmolunum ykkar:-)

B.kv. Steinunn frænka