Wednesday, November 15, 2006

Fyrsta orðið


Jæja, þá er Hjördís Ylfa farin að tala !!! Hún á reyndar langa leið fyrir höndum í þeim málum en fyrsta orðið er komið á hreint hjá henni. Orðið er "datt", þetta er búið að vera í mótun hjá henni síðustu vikurnar en nú hendir hún snuddunni sinni í gólfið og segir svo greinilega "datt". Hryllilega sætt, allavegana þangað til hún fer að henda öllu lauslegu í gólfið og láta okkur sækja það :-)

1 comment:

Steinunn said...

Ohh en gaman :-) Það er ekki ólíklegt að sú stutta eigi eftir að hafa jafn ótrúlega mikinn orðaforða og stóra systir sín þegar fram líða stundir! Sendum okkar bestu afmæliskveðjur til Guðrúnar Herdísar og óskum henni innilega til hamingju með 8 ára afmælið. Ótrúlegt hvað tíminn líður. Hafið það gott elsku fjölskylda á afmælisdaginn :-)
Knús og kossar,
Steinunn og Hanna María